Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, var ánægður með sitt lið í 3-0 sigrinum gegn Breiðabliki í kvöld.
Lestu um leikinn: FH 3 - 0 Breiðablik
„Við fengum á okkur of mörg mörk á síðustu leiktíð og höfum unnið í því að laga varnarleikinn og reynt að byggja ofan á það. Það hefur gengið ágætlega og við fengið á okkur eitt mark í fjórum leikjum," sagði Heimir.
„Seinni hálfleikurinn var að mínu mati mjög góður, bæting frá síðasta leik. Næst er erfiður leikur gegn KR í Frostaskjólinu."
„Í seinni hálfleik fengum við virkilega góð færi en við erum sáttir við 3-0 á heimavelli."
Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.






















