Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   sun 20. maí 2012 23:17
Daníel Freyr Jónsson
Ítalía: Napoli lagði Juventus í bikarúrslitum
Napoli sigraði í kvöld Juventus í úrslitum ítalska bikarins, 2-0.

Edinson Cavani skoraði fyrsta mark leiksins þegar tæpur hálftími var eftir af leiknum. Markið kom úr vítaspyrnu sem dæmd hafði verið eftir að brotið var á Ezequiel Lavezzi innan teigs.

Það var síðan Slóvakinn Marek Hamsik sem tryggði sigurinn með marki úr skyndisókn seint í leiknum.

Flestir höfðu búist við sigri Juventus sem á dögunum urðu meistarar. Annað kom hinsvegar á daginn þar sem Juventus tapaði þarna sínum fyrsta leik í 43 leikjum í öllum keppnum.

Þetta var einnig síðasti leikur goðsagnarinnar Alessandro Del Piero fyrir Juventus eftir 19 ára vist.
Slapp
banner
banner
banner