Keppni í spænsku úrvalsdeildinni er lokið og því er ekki úr vegja að kíkja á lið tímabilsins.
Fótbolti.net fékk Guðmund Benediktsson, lýsanda á Stöð 2 Sport, til að velja lið tímabilsins í La Liga.
Gummi er mjög hrifinn af sóknarleik og hann stillir upp í leikkerfið 3-4-1-2.
Markvörður:
Iker Casillas (Real Madrid)
Besti GK á Spáni á tímabilinu, heldur einbeitingu mjög vel þrátt fyrir að ekki sé alltaf mikið að gera.
Varnarmaður:
Sergio Ramos (Real Madrid)
Besti varnarmaður Real Madríd og það skemmir ekki fyrir að hann er alltaf líklegur til að skora fyrir sitt lið.
Varnarmaður:
Javi Martinez (Athletic Bilbao)
Hjartað í liði Bilbao, skilar frábæru starfi bæði í vörn sem á miðjunni.
Varnarmaður:
Carles Puyol (Barcelona)
Er til í að fórna lífi sínu fyrir sitt lið, tekur líka bandið.
Miðjumaður:
Mezut Özil (Real Madrid)
Öll lið eiga hafa a.m.k. einn Þjóðverja, frábær allt tímabilið.
Miðjumaður:
Xavi (Barcelona)
Besti miðjumaður í heimi, PUNKTUR!
Miðjumaður:
Xabi Alonso (Real Madrid)
Frábær spyrnumaður og mótvægi við Xavi í stutta spilinu.
Miðjumaður:
Santi Carzola (Malaga)
Bestu kaupa Malaga, leggur upp og skora.
Sóknarmaður:
Cristiano Ronaldo (Real Madrid)
Stórkostlegur í vetur, svo nálægt því að vera bestur í heimi!
Sóknarmaður:
Lionel Messi (Barcelona)
Bestur í heimi!
Sóknarmaður:
Radamel Falcao (Atletico Madrid)
Hinn fullkomni "center", pot, skallar eða þrumufleygar, hann er með allt vopnabúrið.





