Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 21. maí 2012 09:55
Þórður Már Sigfússon
Heimild: Daily Mail 
Fjögurra milljón punda maðurinn Björn undir smásjá Everton
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Verðmiði Björns Bergmanns Sigurðarsonar fer hækkandi dag frá degi ef marka má enska fjölmiðla.

Í gær greindi Daily Mirror frá áhuga Úlfanna á leikmanninum þar sem nýráðinn stjóri liðsins, Stale Solbakken, var sagður reiðbúinn að borga Lilleström þrjár milljónir punda fyrir leikmanninn.

Á vefsíðu Daily Mail er hins vegar fullyrt nú í morgunsárið að David Moyes, stjóri Everton, líti hýru auga til Björns og ku tilboð upp á fjórar milljónir punda vera á leið inn á borð til forráðamanna Lilleström.

Útsendari frá Everton fylgdist með Birni skora eina mark leiksins þegar Lilleström sigraði Sognal, 1-0, í norsku úrvalsdeildinni í gær en útsendarar víðsvegar að úr Evrópu hafa flykkst á leiki Lilleström að undanförnu í þeim tilgangi að skoða Björn, enda hefur hann verið sjóðheitur upp við mark andstæðinganna síðustu vikurnar.

Hann hefur skorað sjö mörk í síðustu fjórum deildarleikjum liðsins og samtals 11 mörk í síðustu sex leikjum liðsins í deild og bikar.
Slapp
banner
banner
banner