Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 21. maí 2012 10:24
Magnús Már Einarsson
Heimild: AFP 
Anelka hótar að yfirgefa Shanghai Shenhua
Nicolas Anelka hefur hótað að yfirgefa kínverska félagið Shanghai Shenhua ef hann fær ekki meiri stuðning frá félaginu.

Anelka gekk til liðs við Shanghai Shenhua í upphafi árs en á dögunum kom hann einnig inn í þjálfaralið félagsins eftir að Jean Tigana var rekinn.

Florent Ikwange Ibenge var ráðinn aðalþjálfari á sama tíma en Anelka segist stjórna öllu og hann vill fá meiri stuðning.

,,Ég er í raun aðalþjálfari því ég ákveð hvaða leikmenn spila og sé um æfingarnar," sagði Anelka.

,,Ef að kemur enginn stuðningur við mig og þeir halda áfram að fara á bakvið mig þá mun ég ákveða fljótlega hvort ég fari eða ekki. Það veltur á því hvað gerist á næstu vikum."

Didier Drogba, fyrrum liðsfélagi Anelka hjá Chelsea, hefur verið sterklega orðaður við Shanghai Shenhua að undanförnu.
Slapp
banner