Heimild: Sky
Fjögur félög hafa áhuga á Eden Hazard leikmanni Lille en þessi knái Belgi mun að öllum líkindum fara í ensku úrvalsdeildina í sumar.
Hazard skoraði þrennu í 4-1 sigri Lille á Nancy í gær en bæði Manchester City og United hafa sýnt honum áhuga sem og Chelsea.
,,Ég er ekki viss um að hann viti það sjálfur (hvert hann muni fara) svo í augnablikinu vitum við að ekki," sagði Frederic Paquet framkvæmdastjóri Lille.
,,Ég veit um fjögur félög sem hafa áhuga á að kaupa hann. Það er ekki okkar að segja honum til."
,,Við eigum í mjög góðu sambandi við leikmanninn, við munum vinna saman og erum að bíða eftir að hann vilji á milli þessara fjögurra félaga."

