Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
   mán 21. maí 2012 17:00
Magnús Már Einarsson
Hilmar Geir fékk gat í gegnum eyrað (Mynd)
Hér má sjá eyrað á Hilmari.  Það hvíta á myndinni brjósk sem fór í sundur og þar undir er skurður bæði lóðrétt og lárétt en gat kom í gegnum eyrað.
Hér má sjá eyrað á Hilmari. Það hvíta á myndinni brjósk sem fór í sundur og þar undir er skurður bæði lóðrétt og lárétt en gat kom í gegnum eyrað.
Mynd: Ísak Örn Þórðarson
Hilmar Geir Eiðsson, leikmaður Keflavíkur, var fluttur á sjúkrahús eftir samstuð við Jóhannes Karl Guðjónsson leikmann ÍA í leik liðanna í gær. Hilmar Geir meiddist eftir skallaeinvígi og var í kjölfarið borinn af velli en annað eyrað fór ansi illa úr samstuðinu.

,,Ég hef oft verið betri en í dag. Þetta er eiginlega allt í móðu hjá mér en ég fékk heilahristing og gat á eyrað," sagði Hilmar Geir við Fótbolta.net.

,,Ég hef aldrei brotnað áður en lenti þarna í að eyrnabrotna. Það rifnaði eitthvað í eyranu og það var brjósk sem brotnaði þannig að það þurfti að sauma níu spor. Það stóð eitthvað út úr eyranu en þeir náðu að sauma þetta ágætlega saman og ég enda ekkert eins og Evander Holyfield (hnefaleikamaður)," sagði Hilmar Geir léttur í bragði.

Eins og sjá má á myndinni hér til hliðar leit eyrað ekki vel út eftir samstuðið í gær.

,,Sem betur fer sá ég þetta ekki sjálfur en eins og þessu var lýst fyrir mér þá var þetta ekki það fallegasta. Ísak Örn (Þórðarson) fór með mig upp á slysó og hann þurfti að gubba nokkrum sinnum af því að þetta var svo ógeðslegt."

Keflavík mætir ÍBV í næsta leik á fimmtudagskvöld og óvíst er hvort Hilmar Geir spili þann leik.

,,Það er 50/50, það fer eftir því hvernig hausinn og skurðurinn verður. Ég er með vafið utan um hausinn á mér núna og ég þarf líklega að vera þannig á fimmtudaginn líka," sagði Hilmar Geir.
Slapp
banner
banner
banner