Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 21. maí 2012 18:00
Magnús Már Einarsson
Dean Martin heldur ÍA í formi: Þýðir ekki að vera búnir eftir 70
Verður fertugur í sumar
Dean Martin.
Dean Martin.
Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir
Skagamenn hafa komið af gífurlegum krafti í Pepsi-deildina en þeir hafa unnið alla fjóra leiki sína til þessa. Í öllum fjórum leikjunum hafa Skagamenn skorað sigurmarkið á síðustu 25 mínútunum, síðast í gær þegar Garðar Bergmann Gunnlaugsson skoraði í viðbótartíma gegn Keflvíkingum.

Dean Martin er aðstoðarþjálfari ÍA og hann sér um þrekþjálfunina hjá Skagamönnum. Hann lét leikmenn ÍA taka vel á því í vetur og það virðist vera að skila sér núna.

,,Menn hafa verið mjög duglegir að æfa í vetur. Við stefndum á að vera í góðu standi þar sem þetta er miklu erfiðari deild sem við erum í núna. Við viljum klára leikina almennilega, maður getur ekki verið búinn eftir 70 mínútur. Það verður að vera nóg eftir og leikmenn vita að þeir geta hlaupið lengur," sagði Dean við Fótbolta.net í dag.

Í vetur var Dean nokkrum sinnum í viku með sérstakar æfingar í bland við hefðbundnar fótboltaæfingar.

,,Þetta er búinn að vera langur vetur, við höfum undirbúið okkur vel og þetta hefur byrjað ágætlega í sumar. Þetta snýst fyrst og fremst um að minnka meiðsli og hafa alla heila til að búa til samkeppni um að komast í liðið. Þetta snýst líka um að hlaupa í 90 mínútur plús og halda einbeitingu," sagði Dean sem lætur leikmenn taka á því á ýmsa vegu.

,,Við höfum verið í allskonar æfingum. Við höfum verið að vinna í þessu lengi, allir leikmenn hafa lagt sig 100% fram og þeir fylgja prógrami sem þeir fá. Þeir hafa verið duglegir að hugsa um sjálfan sig og það hjálpar okkur."

Dean verður fertugur í ágúst næstkomandi en hann er sjálfur í toppformi. Í gær spilaði Dean sinn annan leik á tímabilinu og hann stimplaði sig rækilega inn með því að leggja upp annað markið og eiga þátt í því þriðja.

,,Ég er í fínu standi og er alltaf tilbúinn. Ég reyni að koma inn til að breyta leikjum og það gekk vel í gær, vonandi geri ég meira af þessu í sumar. Ég æfi bara á fullu eins og hinir og þarf að sanna mig til að fá sæti í liðinu," sagði Dean að lokum.
Slapp
banner
banner