Montpellier varð franskur meistari um helgina með því að leggja Auxerre að velli.
Þetta var í fyrsta sinn sem liðið tryggir sér titilinn en það náði að skáka hinu moldríka félagi Paris Saint-Germain.
Louis Nicollin, forseti Montpellier, sagði í sjónvarpsviðtali þann 15. apríl að ef hans lið myndi standa uppi sem sigurvegari myndi hann fá sér móhíkana-greiðslu eins og vængmaður PSG, Jeremy Menez, er með.

Hann gerði gott betur en það og litaði hárið appelsínugult og blátt sem eru félagslitir Montpellier.