Giovanni Trapattoni, landsliðsþjálfari Írlands, segist mjög bjartsýnn á að fyrirliðinn Robbie Keane geti tekið þátt í lokaundirbúningnum fyrir Evrópumótið.
Þessi 31 árs leikmaður hefur átt við nárameiðsli að stríða en skoðun leiddi í ljós að hann er á góðum batavegi.
Þessi 31 árs leikmaður hefur átt við nárameiðsli að stríða en skoðun leiddi í ljós að hann er á góðum batavegi.
Keane er lykilmaður í írska landsliðinu. „Andstæðingarnar bera mikla virðingu fyrir honum og hann býr yfir gríðarlegri reynslu," segir Trapattoni.
John O'Shea, varnarmaður Sunderland, gat ekki æft með írska landsliðinu í gær vegna ökklameiðsla en þau eru aðeins smávægileg og vonast er til að hann geti æft á morgun.



