Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 21. maí 2012 19:30
Elvar Geir Magnússon
Brendan Rodgers lærir af Spánverjum
Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Swansea, fylgist grannt með undirbúningi Spánverja fyrir Evrópumótið. Rodgers talar spænsku og telur sig geta lært mikið af Spánverjum.

„Ég fylgist með æfingum, spjalla við þjálfarana og við skiptumst á hugmyndum," segir Rodgers sem hefur náð góðum árangri með Swansea sem spilar hörkuflottan fótbolta.

Rodgers segir að þetta sé eini tíminn til að móttaka nýjar hugmyndir í fótboltanum.

„Ég hef alltaf gert þetta. Eftir tímabilið skoða ég þau lið sem eru í fremstu röð í heiminum."

Rodgers mun svo í lok mánaðarins fylgjast með landsliði Wales leika vináttuleik gegn Mexíkó í New York.
Slapp
banner