Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 21. maí 2012 19:45
Daníel Freyr Jónsson
Drogba: Ég mun fara frá Chelsea
Didier Drogba hefur staðfest að hann muni yfirgefa Evrópumeistara Chelsea í sumar.

Samningur framherjans er að renna út og ætlar hann sér ekki að framlengja hann.

Drogba kom til Chelsea árið 2004 frá Marseille. Hann hefur leikið yfir 300 leiki fyrir félagið og reyndist hetja liðsins í úrslitum Meistaradeildarinnar á laugardaginn þar sem hann skoraði jöfnunarmark liðsins, auk þess sem hann tryggði Chelsea sigurinn í vítaspyrnukeppninni.

,,Við munum ekki vera saman á næsta tímabili," sagði Drogba við France Football.

,,Þar sem ég hef ákveðið að fara þá hef ég sagt liðsfélögum mínum það, augnliti til aunglits."

Fílbeinstrendingurinn finnst þetta leiðinlegur endir á ferli sínum hjá félaginu, en hann er mjög vinsæll meðal stuðningsmanna Chelsea. Félagið bauð honum aldrei nýjan samning.

,,Þeir brutu mig niður. Mér fannst erfitt að taka því að þetta væri búið milli mín og félagsins," bætti Drogba við.

,,En ég sé ekki fyrir mér að sitja á bekknum og horfa á aðra spila á meðan félagið er að leitast við að byggja upp nýtt lið. Svo svona verður þetta, ég er tilbúinn til að taka stökkið inn í óvissuna. Þetta verður annað ævintýri."

Drogba hefur sterklega verið orðaður við hið kínverska Shenhuan, þar sem Nicolas Anelka er í dag spilandi þjálfari.
Slapp
banner
banner