Sinisa Mihajlovic hefur verið ráðinn sem landsliðsþjálfari Serbíu.
Hann tekur við starfinu af Radovan Curcic, en sá stýrði liðinu tímabundið eftir að Vladimir Petrovic hætti með liðið þegar honum mistókst að koma því á EM.
Hinn 43 ára Mihajlovic er metnaðarfullur og leggur hann starfið að veði um að koma liðinu á HM 2014.
,,Ég er fullur sjálfstrausts um að við getum komist á HM og ég mun segja upp ef það mistekst," sagði Mihajlovic eftir að hafa skrifað undir tveggja ára samning.
,,Ég hafði tilboð frá þremur ítölskum félögum á meðan ég var í viðræðum við serbneska knattspyrnusambandið, en þær stóðu yfir í hálfan þriðja mánuð. En það var aldrei efi í mínum huga þar sem það er hvers mans draumur að stýra landsliði þjóðar sinnar," bætti hann við.
Mihajlovic átti farsælan feril sem leikmaður og spilaði í 14 ár í efstu deild á Ítalíu með Roma, Sampdoria, Lazio og Inter.
Eftir að hann lagði skónna á hilluna starfaði hann við hlið Roberto Mancini, núverandi stjóra Manchester City, í tvö ár, áður en hann stýrði Bologna, Catania og Fiorentina.



