Emil Hallfreðsson, leikmaður Hellas Verona, hefur verið valinn í lið ársins í Serie B en valið var kunngjört í gærkvöldi.
Emil fékk verðlaun á sérstakri verðlaunaafhendingu sem fór fram á Rimini í gærkvöldi.
Þjálfarar í Serie B sáu um valið en Emil hefur vakið mikla athygli fyrir góða frammistöðu með Verona á tímabilinu.
Emil fékk verðlaun á sérstakri verðlaunaafhendingu sem fór fram á Rimini í gærkvöldi.
Þjálfarar í Serie B sáu um valið en Emil hefur vakið mikla athygli fyrir góða frammistöðu með Verona á tímabilinu.
Lokaumferðin í Serie B fer fram um næstu helgi og útlit er fyrir að Hellas Verona mun enda í þriðja eða fjórða sæti deildarinnar.
Það þýðir að liðið fer í umspil um sæti í Serie A en þar berjast liðin í 3-6. sæti um eitt laust sæti. Undanúrslitaleikirnir fara fram 30. maí og 2. júní og úrslitaleikirnir í kjölfarið í byrjun júní.




