Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 22. maí 2012 12:00
Daníel Freyr Jónsson
Shay Given missir úr æfingum vegna meiðsla
Markvörðurinn Shay Given á í hættu á að missa undirbúningi Írlands fyrir EM.

Þessi landsliðsmaður Íra hefur farið í myndatöku á hné eftir að hafa meiðst á æfingu.

Landsliðið er núna í æfingabúðum rétt utan við Dublin í heimalandinu og mun hann ekki taka þátt í æfingum á næstu dögum.

Talsmaður írska knattspyrnusambandsins segir þó að meiðslin séu ekki alvarleg og að hann sé einungis í hvíld öryggisins vegna.

Given á að baki 121 landsleik með þjóð sinni mun þó hugsanlega standa í marki Írlands í æfingaleik gegn Bosníu um næstu helgi. Eftir það ferðast liðið síðan til Ítalíu þar sem lokaundirbúningur þeirra fer fram.
Slapp
banner
banner