Louis Saha vill leika áfram með Tottenham á næstu leiktíð.
Þessi 33 ára gamli framherji gekk í raðir Tottenham frá Everton í janúar á þesssu ári og skrifaði undir sex mánaða samning.
Framtíð hans er nú óráðin, en hann vill helst vera áfram í herbúðum lundúnarliðsins.
,,Ég get ekki sagt að ég vilji fara," sagði Frakkinn.
Saha segist hafa notið sín vel á þessum stutta tíma og að hann vilji halda áfram að vinna með Harry Redknapp, stjóra Tottenham.
,,Harry er góður vinur minn. Það sem gerir hann að svona góðan er persóna hans, leikskipulag og hvernig hann vinnur og hefur samband við leikmenn sína," bætti Saha við.
Saha er ekki eini framherjinn sem vill vera áfram hjá Tottenham, þar sem Emmanuel Adebayor hefur einnig lýst yfir vilja sínum á því. Adebayor var hjá Tottenham í vetur á láni frá Manchester City.



