Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 22. maí 2012 12:26
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Jose Mourinho semur við Real Madrid til 2016 (Staðfest)
Jose Mourinho hefur skrifað undir nýjan fjögurra ára samning við spænsku meistarana í Real Madrid.

Þessi 49 ára gamli Portúgali hefur reglulega verið orðaður við félög á Englandi en nú er útlit fyrir að hann verði áfram á Spáni næstu árin.

Mourinho tók við Real Madrid árið 2010 eftir að hafa unnið Meistaradeildina með Inter.

Hann varð bikarmeistari með Real Madrid í fyrra og í ár stýrði hann liðinu til sigurs í spænsku deildinni.

Fyrri samningur Mourinho var til ársins 2014 en nýi samningurinn er til sumarsins 2016.

Ef Mourinho verður hjá Real Madrid út samningstímann verður hann sá þjálfari sem hefur verið lengst að störfum hjá félaginu síðan Miguel Munoz var þjálfari frá 1960 til 1974.
Slapp
banner
banner