Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 22. maí 2012 13:30
Fótbolti.net
Uppgjör 4. umferðar: Gylfi fagnaði í Krikanum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þá er komið að uppgjörinu sívinsæla. Í uppgjörinu að þessu sinni ætlum við að gera tilraun með að velja „Ekki lið umferðarinnar" sem samanstendur af leikmönnum sem ekki voru að finna sig.

Leikur umferðarinnar: ÍA 3 - 2 Keflavíkur
Skagamenn eru áfram með fullt hús en sigur þeirra gegn Keflavík landaðist ekki fyrr en í blálokin. Garðar Gunnlaugsson kom sprækur inn sem varamaður og tryggði sigurinn með fallegu marki. Eftir slaka fyrstu leiki var Garðar líflegur á sunnudaginn.

Mark umferðarinnar: Víðir Þorvarðarsson
Það var hávaðarok í Vestmannaeyjum þegar ÍBV og Fylkir gerðu 1-1 jafntefli. Eyjamaðurinn Víðir notfærði sér rokið þegar hann átti þrumuskot langt fyrir utan teig sem söng í netinu.

Áhorfandi umferðarinnar: Gylfi Þór Sigurðsson
Þessi heitasti leikmaður Íslands var mættur á leik FH og Breiðabliks. Blikar hafa reynt að eigna sér hlut í Gylfa en það leyndi sér ekki að hjarta hans slær með FH. Gylfi fagnaði mörkunum þremur sem FH skoraði vel og innilega.

Hetja umferðarinnar: Magnús Már Lúðvíksson
Magnús Már byrjaði sinn fyrsta leik þetta sumarið og nýtti sér það vel með því að skora sigurmarkið gegn Val.

Vinir umferðarinnar: Freyr og Gunnar Jarl
Freyr Alexandersson, aðstoðarþjálfari Vals, lét Gunnar Jarl Jónsson dómara heyra það ítrekað í leik Vals og KR. Gunnar fékk á endanum nóg og gaf Frey gult spjald. Þessir æskuvinir léku saman á sínum tíma í vörninni hjá Leikni í Breiðholti en þá fór betur á með þeim en í þessum leik.

Atvik umferðarinnar: Lennon bjargaði á línu frá Hewson
Í stöðunni 1-0 fyrir Selfossi fékk Sam Hewson, miðjumaður Fram, dauðafæri. Á línunni stóð vinur hans og liðsfélagin, Steven Lennon. Skot Hewson fór beint í Lennon. Kostulegt atvik.

Twitter-færsla umferðarinnar: Sam Hewson
„I am shit" skrifaði Hewson, miðjumaður Fram, eftir dapra frammistöðu gegn Selfossi.

Ekki lið umferðarinnar:
Óskar (Grindavík)
Daði (Fram) - Þórður Steinar (Breiðablik) - Troost (Breiðablik) - Ray Anthony (Grindavík)
Almarr (Fram) - Guðjón Lýðs (Valur) - Óli Baldur (Grindavík)
Hólmbert (Fram) - Lennon (Fram) - Rnkovic (Breiðablik)

Þjálfari umferðarinnar: Logi Ólafsson
Logi og hans lið náðu að loka vel á öflugustu leikmenn Fram og tryggja sér stigin þrjú í Laugardalnum.

Gatasigti umferðarinnar: Vörn Grindavíkur
Fyrir tímabilið héldu margir að erfitt yrði að brjóta vörn Grindavíkur á bak aftur. Annað hefur komið á daginn og liðið fengið þrettán mörk á sig í fjórum leikjum.

Reynslubolti umferðarinnar: Dean Martin
Hann er í fantaformi. Hann verður 40 ára í sumar. Kom inn sem varamaður í leik ÍA og Keflavíkur og hjálpaði til við að tryggja liðinu þrjú stig. Enn og aftur eru skiptingar Þórðar þjálfara að skila sínu.

Dómari umferðarinnar: Erlendur Eiríksson
Málarameistarinn var besti dómarinn í fyrra og hann hefur engu gleymt. Dæmdi leik FH og Breiðabliks fantafínt.
Slapp
banner
banner
banner
banner