Joe Cole er kominn aftur í herbúðir Liverpool eftir lánsdvöl hjá franska liðinu Lille. Cole segist vonast til þess að hann eigi framtíð hjá Liverpool.
Hann segist vera betur búinn undir það að brjóta sér leið inn í liðið núna en þegar hann gekk upphaflega til liðs við félagið.
Hann segist vera betur búinn undir það að brjóta sér leið inn í liðið núna en þegar hann gekk upphaflega til liðs við félagið.
Nýliðar West Ham fylgjast grannt með þróun mála hjá Cole en þeir vilja fá hann í baráttuna næsta vetur.
Þá hefur Rudi Garcia, þjálfari Lille, lýst því yfir að mikill vilji sé til þess að fá Cole aftur til franska félagsins á næstu leiktíð en hinn þrítugi Cole lék vel í búningi Lille.
Cole segist gera sér vel grein fyrir því að enska deildin sé talsvert öflugri en sú franska og að hann þurfi að leggja hart að sér til að komast í liðið hjá Liverpool.



