Heimild: Sky
Didier Drogba, framherji Chelsea, hefur staðfest að hann muni yfirgefa félagið þegar samningur hans rennur út í næsta mánuði.
Drogba vann Meistaradeildina með Chelsea um helgina en hann hefur verið sterklega orðaður við Shanghai Shenhua í Kína þar sem fyrrum liðsfélagi hans Nicolas Anelka er spilandi þjálfari.
Í gær bárust fréttir þess efnis að Drogba væri á förum frá Chelsea en þær voru fljótlega bornar til baka. Í dag birti Chelsea síðan yfirlýsingu á heimasíðu sinni þar sem hinn 34 ára gamli Drogba staðfesti brottför sína.
,,Ég vil bina enda á allar sögusagnir með því að staðfesta að ég er á förum frá Chelsea," sagði Drogba sem hefur verið í lykilhlutverki hjá Chelsea undanfarin átta ár.
,,Þetta var mjög erfið ákvörðun fyrir mig en ég er mjög stoltur af því sem við höfum afrekað hér og núna er rétti tíminn fyrir nýja áskorun."
,,Sem lið þá höfum við afrekað mikið og unnið alla titla sem hægt er að vinna. Laugardagurinn var mjög sérstakt augnablik fyrir alla hjá félaginu og fyrir stuðningsmennina. Ég er mjög stoltur af því að hafa átt þátt í að fá marga titla til félagsins sem hefur verið heimili mitt undanfarin átta ár."
,,Ég vil nýta tækifærið og þakka öllum hjá félaginu, sérstaklega Roman (Abramovich) og liðsfélögum mínum sem eru margir mjög nánir vinir mínir og verða vinir mínir að eilífu."
,,Ég vil líka þakka stuðningsmönnum Chelsea sérstaklega fyrir að hafa sýnt mér svona mikla ást og stuðning í gegnum árin. Ég óska félaginu alls hins besta í framtíðinni, þið verðið alltaf í hjarta mínum."


