,,Það er óhætt að segja það. Þetta var svo sem ekki fallegt hérna í dag, en þrjú stig til okkar og við erum hrikalega ánægðir með þessi þrjú stig," sagði Haraldur Freyr Guðmundsson, leikmaður Keflavíkur eftir 1-0 sigur liðsins á ÍBV í Pepsi-deildinni í kvöld.
Lestu um leikinn: Keflavík 1 - 0 ÍBV
Jóhann Birnir Guðmundsson skoraði eina mark leiksins á 64. mínútu, en sigurinn var mikilvægur fyrir heimamenn í Keflavík.
,,Við töluðum um það eftir síðasta leik uppi á Skaga þegar við fengum á okkur þrjú mörk að við myndum reyna að þétta okkur aðeins og þétta liðið, en það tókst engan veginn í fyrri hálfleik þar sem mér fannst þeir ráða öllu inni á vellinum og við vorum alltof háir með fremstu línuna og allt of aftarlega með öftustu línuna."
,,Við vorum heppnir að vera ekki bara undir í hálfleik, en náum að laga það í seinni hálfleik og leikurinn svona jafnast út þó að vissulega að þeir hefðu átt helling í þessum leik og þetta hefði getað farið á alla vegu, en við erum bara ánægðir með að ná þrjú stig."
Keflavík missti mann af velli rétt áður en leiknum lauk, en Jóhann Ragnar Benediktsson fékk að líta sitt annað gula spjald þá fyrir að tefja.
,,Jájá klaufaskapur. Ég var nú alveg ofan í þessu atviki og ég veit ekki hvernig Jói átti að framkvæma spyrnuna þar sem Hilmar liggur fyrir boltanum og ekki stillir hann boltanum upp. Á hann að hoppa yfir hann? Ef hann hefði átt að spjalda einhvern þá ætti hann að spjalda Hilmar, ef hann á að spjalda einhvern í þessu atviki."
,,Mér finnst fáránlegt að hann fái seinna gula og rautt fyrir þetta að taka ekki spyrnuna samt þar sem það liggur maður beint fyrir framan að reima skóna, þannig mér finnst þetta bara fáránlegt af honum að gefa honum spjald fyrir þetta."
,,Við getum tekið það með okkur að við gefum okkur allan í leikinn í dag og skiljum hjartað eftir á vellinum og erum tilbúnir í fighting," sagði hann að lokum.
Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.






















