Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
   fim 24. maí 2012 23:04
Brynjar Ingi Erluson
Zoran Ljubicic: Haraldur stjórnaði þessu frábærlega
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
,,Við vorum að leggja 120 prósent á okkur í dag og við vissum að þetta yrði erfiður leikur þar sem ÍBV gefur ekki mikið pláss og eru mjög skipulagðir. Þeir eru með marga góða leikmenn og við vissum að það yrði mjög erfitt að spila í gegnum þá, en ég er mjög sáttur og verð að hrósa mínum mönnum fyrir frammistöðuna," sagði Zoran Ljubicic, þjálfari Keflvíkinga eftir sigur liðsins á ÍBV í Pepsi-deildinni í kvöld.

Lestu um leikinn: Keflavík 1 -  0 ÍBV

Jóhann Birnir Guðmundsson skoraði eina mark leiksins á 64. mínútu og tryggði þar með Keflavík 1-0 sigur, en liðið hefur farið vel af stað á tímabilinu og er komið með sjö stig eftir fimm leiki.

,,Mér fannst við gera allt of mörg mistök á miðjunni og náðum aldrei að gefa hratt á milli manna og við gáfum mönnum allt of mikinn tíma til þess að skila sér til baka og loka á þær leiðir sem við ætluðum að sækja á."

Einar Orri Einarsson fór meiddur af velli og þá fékk Jóhann Ragnar Benediktsson að líta rauða spjaldið undir lok leiksins fyrir að tefja.

,,Við verðum að skoða þetta, þetta eru meiðsli í mjöðm og við erum búnir að vera óheppnir í síðustu tveimur eða þremur leikjum þar sem við höfum misst menn. Við misstum tildæmis slóvenskan miðvörð gegn ÍA og núna Einar, en eins og staðan er þá kemur alltaf maður í manns stað."

,,Ég fór að tala við dómarann og sagði að mér hefði fundist þetta ósanngjarnt. Hilmar var að klæða sig í skóna og hann ætlaði að taka aukaspyrnuna, en ég get ekkert gert gegn þessu. Það er mjög erfitt að dæma um þetta núna, en ég fékk inn og fékk útskýringu, svo ég verð að treysta þeim."


,,Við vorum ákveðnir í að bæta þetta eftir síðasta leikinn gegn ÍA og æfðum þetta vel í vikunni, gekk vel í kvöld og Haraldur stjórnaði þessu frábærlega."

,,Þegar við erum með svona hugarfar og vilja þá get ég ekki sagt að ég sé hræddur,"
sagði hann að lokum.

Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér að ofan í sjónvarpinu.
Slapp
banner
banner