,,Þetta er hrikalega svekkjandi. Við vorum með leikinn í hendi okkar og stjórnuðum leiknum, sérstaklega þegar við náðum inn þriðja markinu. Svo er það bara hrikalega svekkjandi að fá þetta svona í bakið,“ sagði Stefán Ragnar Guðlaugsson, leikmaður Selfoss eftir 3-3 jafnteflið gegn Grindavík í kvöld.
Lestu um leikinn: Selfoss 3 - 3 Grindavík
Selfyssingar komust í 3-1 þegar stundarfjórðungur var eftir af leiknum en gestirnir náðu að stela stigi með tveimur mörkum úr föstum leikatriðum á lokakafla leiksins.
,,Þetta er hlutur sem við þurfum að fara betur yfir. Það er grundvallaratriði að passa mennina sína, halda línu og þess háttar og við klikkuðum á því," hélt Stefán áfram.
Stefán skoraði þriðja mark Selfyssinga og sem mun gleðja ýmsa Fantasy spilendur.
,,Tengdó verður örugglega rosalega ánægður með mig,“ sagði Stefán að lokum.
























