,,Svekkjandi og klaufaskapur af okkar hálfu að missa þennan leik út úr höndunum á okkur. Við áttum að fara út úr þessu með þrjú stig, við héldum þeim vel frá okkar marki án þess að leyfa þeim að skapa sér færi. Við vissum að þeir væru sterkir í föstum leikatriðum og dekkningin og grimmdin inn í vítateingum hjá okkur var ekki fyrir hendi,“ sagði Logi Ólafsson, þjálfari Selfyssinga, eftir að liðið missti niður 3-1 forystu í 3-3 jafntefli.
Lestu um leikinn: Selfoss 3 - 3 Grindavík
Selfyssingar fengu tvö mörk á sig úr föstum leikatriðum á síðustu fimm mínútum leiksins sem Logi segir að lið sitt þurfi að laga.
,,Við vorum með góð tök á þessum leik og við bökkuðum kannski of mikið sem gaf þeim færi á að senda þessa háu bolta inn þar sem þeir eru sterkir. Við þurfum að laga það og vera grimmir í dekkningunni í föstum leikatriðum."
Logi var ánægður með Jón Daða Böðvarsson sem skoraði fyrsta mark leiksins með laglegu skoti úr aukaspyrnu.
,,Það eru margir fúsir til að taka aukaspyrnur í þessu liði og Jón daði gerði þetta vel. Það eru margir aðrir sem geta skotið en þetta var virkilega vel gert hjá honum,“ sagði Logi að lokum.





















