Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fös 25. maí 2012 00:10
Þórður Már Sigfússon
Heimild: Liverpool Echo 
Everton sagt í viðræðum við Lilleström um Björn
Enska dagblaðið, Liverpool Echo, fullyrðir í kvöld að forráðamenn Everton hafi hafið viðræður við Lilleström um kaup á landsliðsframherjanum Birni Bergmanni Sigurðarsyni.

Útsendarar á vegum Everton hafa fylgst grannt með Birni að undanförnu, síðast í kvöld þegar Lilleström gerði markalaust jafntefli við Álasund á heimavelli.

Áhugi evrópskra liða á Birni hefur stigmagnast undanfarnar vikur enda hefur leikmaðurinn skorað sjö mörk í síðustu fimm deildarleikjum Lilleström.

Talið var að enska 1. deildarliðið Wolves væri í kjörstöðu í kapphlaupinu um Skagamanninn og var nýr stjóri liðsins, Stale Solbakken, á meðal áhorfenda á leik Lilleström í kvöld.

Hins vegar greinir Liverpool Echo frá því að David Moyes geri sér vonir um að Björn spili við hlið Króatans Nikica Jelavic í framlínu Everton á næsta keppnistímabili en talið er að Liverpool-liðið þurfi að reiða fram rúmar þrjár milljónir punda fyrir leikmanninn.
Slapp
banner