Heimild: Soccerway
Laurent Blanc, þjálfari franska landsliðsins, viðurkennir það mikil vonbrigði að Loic Remy, framherji Marseille, missi af Evrópumótinu í sumar vegna meiðsla.
Remy var valinn í 26 manna leikmannahóp franska landsliðsins fyrir Evrópumótið, en síðan meiddist leikmaðurinn gegn Auxerre í frönsku deildinni og þykir ljóst að hann geti ekki farið með liðinu til Póllands og Úkraínu.
,,Það að Loic Remy fari ekki með er hrikalegt, en eftir næst síðasta leikinn í frönsku deildinni þá virtist þetta því miður ekki hægt. Við reyndum, eða réttast sagt vonuðum að það væri smá möguleiki að taka hann með á Evrópumótið," sagði Blanc.
Blanc ætlar að stilla upp sóknarlegu liði gegn Íslendingum í dag, en hann veit af styrk íslenska liðsins.
,,Við verðum með sóknarlegt lið. Við verðum með teknískt lið. Andstæðingar okkar eru með sérstakar aðferðir til þess að spila leikinn og ég held að við spilum boltanum í loftinu þá koma þeir til með að vinna þá bolta því þeim finnst þægilegra að spila þannig."
,,Svo við höfum ákveðið að hafa teknískra lið þar sem við munum halda boltanum. Ég vona að við verðum meira með boltann heldur en andstæðingarnir og til þess að geta sett auka pressu á Ísland, en við vitum að þeir spila af hörku," sagði hann að lokum.



