Slúðurpakki dagsins á Englandi er fullur af áhugaverðu efni í dag, en Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Hoffenheim mun að öllum líkindum ganga til liðs við Swansea fyrir sjö milljónir punda.
Manchester City mun leiða kapphlaupið um Robin van Persie, framherja Arsenal, ef að félagið neyðist til þess að selja hann í sumar. (Sunday Mirror)
Swansea virðist ætla að slá met sitt fyrir dýrasta leikmanninn með því að fá Gylfa Þór Sigurðsson frá Hoffenheim á sjö milljónir punda. (The Sun)
Manchester City leiðir þá einnig kapphlaupið um Stephane Sessegnon, leikmann Sunderland, en liðið ætlar að tæla hann frá leikvangi ljóssins. (Mirror)
Fabio da Silva, leikmaður Manchester United, sem er á láni hjá Benfica hefur farið vel af stað, en QPR vill fá hann í sínar raðir. (The Sun)
Chelsea mun fá hollenska bakvörðinn Gregory van der Wiel frá Ajax á átta milljónir punda. (Sunday Times)
Arsenal, Tottenham og QPR eru öll að fylgjast með Alessandro Del Piero hjá Juventus eftir að hann gaf það út að hann myndi ekki spila með öðru liði á Ítalíu. (TalkSPORT)
Internacional í Brasilíu hefur hafnað 14 milljón punda tilboði Tottenham í Leandro Damiao, framherja liðsins, en Harry Redknapp vill styrkja framlínuna fyrir næsta tímabil. (Metro)
Bacary Sagna, varnarmaður Arsenal hefur sagt félaginu að kaupa Yann M'Vila frá Rennes í Frakklandi, ef það ætli að halda Robin van Persie áfram hjá félaginu. (Metro)
Roberto Di Matteo, sem vann FA bikarinn og Meistaradeildina með Chelsea á tímabilinu er efstur á blaði hjá Aston Villa, til þess að vera þeirra næsti stjóri. (Mirror)
Roman Abramovich, eigandi Chelsea vill ólmur fá Pep Guardiola sem næsta stjóra félagsins, en þau áform gætu eyðilagst þar sem Manchester United hefur áhuga á honum sem arftaki Sir Alex Ferguson í framtíðinni. (Mirror)
Sir Alex, stjóri Man Utd er þá ekki að íhuga að hætta hjá félaginu, þrátt fyrir að David Whelan, formaður Wigan hafi sagt að hann muni hætta eftir næsta tímabil. (Telegraph)


