Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   sun 27. maí 2012 14:30
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: Sporting Life 
Gerrard: Ánægðir með frammistöðu Young og Carroll
Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool og enska landsliðsins var ánægður með þá félagana Ashley Young og Andy Carroll eftir sigurinn á Norðmönnum í gær.

Englendingar unnu með einu marki gegn engu, en Ashley Young skoraði eina mark leiksins á 9. mínútu eftir sendingu frá Andy Carroll.

,,Ashley er góður leikmaður og þegar hann spilar stöðuna fyrir aftan sóknarmann og þegar hann kemst þarna inn á milli þá getur hann verið mjög hættulegur," sagði Gerrard.

,,Varnir andstæðinga okkar vita ekki hvernig á að eiga við hann því hann finnur plássið svo vel. Hann er í góðu formi fyrir Englendinga og hefur skorað mikið af mörkum á réttum tíma þegar EM er að hefjast."

,,Við erum allir mjög ánægðir með frammistöðu hans og fannst mér hann og Andy Carroll líta vel út í kvöld,"
sagði hann að lokum.
Slapp
banner
banner