Heimild: Football Italia
Andrea Pirlo, leikmaður Juventus og ítalska landsliðsins, er spenntur fyrir Evrópumótinu sem fer fram í Póllandi og Úkraínu.
Pirlo, sem er 33 ára gamall var látinn fara frá AC Milan síðasta sumar á frjálsri sölu. en Juventus ákvað að nýta sér það og fá miðjumanninn reynda í sínar raðir. Það reyndist vera ágætis skref hjá Pirlo þar sem Juventus vann ítölsku deildina og komst í úrslit bikarsins.
Pirlo var einn af betri leikmönnum tímabilsins, en hann var með flestu stoðsendingarnar og var þá í liði ársins. Hann var síðan valinn í ítalska landsliðið sem fer á Evrópumótið í sumar.
,,Þeir hjá AC Milan héldu að þetta væri búið hjá mér, en hérna er ég," sagði Pirlo og brosti á blaðamannafundi hjá ítalska landsliðinu í dag.
,,Ég veit ekki hvort landsliðsferill minn komi til með að halda áfram til 2014, en við munum sjá hvort ég verði nothæfur og verði enn kallaður í liðið." sagði hann að lokum.



