Heimild: Goal.com
Karl-Heinz Rummenigge, framkvæmdarstjóri FC Bayern í Þýskalandi, segir að það sé stundum erfitt að vakna á morgnanna.
FC Bayern tapaði fyrir Chelsea í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu á dögunum, en enska liðið vann eftir vítaspyrnukeppni.
Rummenigge segir það erfitt að vakna á morgnanna, enda sé sá leikur það fyrsta sem kemur upp í hugann.
,,Þegar ég vakna á morgnanna þá er tapið gegn Chelsea í Meistaradeildinni það fyrsta sem kemur upp í hugann," sagði Rummenigge.
,,Sársaukinn innan liðsins er gríðarlega mikill, jafnvel enn verri en þegar við töpuðum gegn Manchester United árið 1999."
,,Ég held að þetta tap komi til með að vera í minnum okkar lengi. Ég tapaði tvívegis í úrslitum HM, 1982 og 1986 og af minni reynslu að dæma, þá veit ég að tíminn læknar öll sár," sagði hann að lokum.




