Heimild: Sky
Charlie Adam, leikmaður Liverpool á Englandi, segist hafa verið í losti með að Kenny Dalglish hafi verið látinn fara sem stjóri liðsins.
Dalglish var á dögunum látinn taka poka sinn hjá Liverpool eftir 18 mánaða veru, en hann stýrði liðinu í tvo úrslitaleiki á þessu tímabili. Liðið lenti þó í áttunda sæti deildarinnar og þótti það ekki fullnægjandi árangur.
Adam segir að Dalglish hafi átt mikinn þátt í því að fá hann til félagsins, en að nú verði hann að halda áfram og sanna sig fyrir næsta stjóra liðsins.
,,Dalglish var lykillinn að því að ég kom til Liverpool, en hann er farinn núna þannig við verðum að halda áfram með okkar. Ég var hissa þegar ég sá að hann var látinn fara, en eigendurnir verða stundum að taka þessar ákvarðanir," sagði Adam.
,,Þeir hafa verið frábæir frá því þeir tóku við og hafa sett mikinn pening í félagið, en núna verðum við að horfa til framtíðar. Sá sem kemur í staðinn verður hæsta klassa og verður vanur að vinna með frábærum leikmönnum."
,,Þetta er eitt af bestu störfunum á Englandi svo að félagið mun laða að sér mikinn áhuga," sagði hann að lokum.



