Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
banner
   sun 27. maí 2012 17:00
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: Sky 
Ivanovic segir Real Madrid hafa áhuga á sér
Branislav Ivanovic, leikmaður Chelsea á Englandi segir að spænska stórliðið Real Madrid hafi áhuga á sér.

Ivanovic hefur reynst vera lykilmaður í vörn Chelsea undanfarin ár, eða síðan hann kom frá Lokomotiv Moskvu árið 2008. Hann var þá mikilvægur partur af liðinu sem vann FA bikarinn og Meistaradeild Evrópu á þessu tímabili.

Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid er sagður hafa mikinn áhuga á leikmaninninum, en Ivanovic staðfesti það við fjölmiðla, þó svo hann sé ekkert að hugsa sér til hreyfings.

,,Já ég veit að það hefur mikið verið rætt um framtíð mína og að Real Madrid hafi áhuga á mér og sé að fylgjast með mér," sagði Ivanovic.

,,Ég veit að Madrid er að fylgjast með mér, en núna er ekki tíminn til þess að ræða það."

,,Ég er að einbeita mér að landsliðinu núna og þá er ég gríðarlega ánægður hjá Chelsea og í London. Ég vann Meistaradeildina í síðustu viku og það er ekki alveg efst í huga mér að skipta um lið,"
sagði hann að lokum.
Slapp
banner
banner
banner