Heimild: Goal.com
Spænska liðið Atletico Madrid vill fá þrjá leikmenn frá Barcelona fyrir komandi tímabil, en frá þessu greinir spænska blaðið AS í dag.
Atletico Madrid rétt missti af sæti í Meistaradeild Evrópu, en liðinu tókst þó að fagna sigri í Evrópudeildinni, þar sem Radamel Falcao fór mikinn í framlínu félagsins. Diego Simeone, þjálfari liðsins vill þó styrkja hópinn í sumar og hefur hann áhuga á þremur Börsungum.
Það eru þeir Marc Muniesa, Christian Tello og Sergi Roberto. Muniesa er varnarmaður að upplagi og hefur leikið nokkra leiki fyrir Barcelona.
Roberto er miðvallarleikmaður sem þykir meðal efnilegri leikmönnum Spánar og þá hefur Tello verið að koma sterkur inn í aðalliðið þar sem hann fékk nokkra leiki í vetur.
Talið er að Simeone vilji fá alla þessa leikmenn í lið sitt, en ljóst er að þeir koma ekki til með að fá mörg tækifæri í aðalliði Barcelona, þar sem samkeppnin um stöðurnar í liðinu er gríðarlega mikil og þyrftu þá annars að sætta sig við að spila með varaliði félagsins.



