Víkingur Ólafsvík 1-0 Höttur:
1-0 Guðmundur Magnússon ('10)
Einn leikur fór fram í 1. deild karla í gær þar sem Víkingur Ólafsvík vann 1-0 sigur á Hetti en leikið var í Ólafsvík.
1-0 Guðmundur Magnússon ('10)
Einn leikur fór fram í 1. deild karla í gær þar sem Víkingur Ólafsvík vann 1-0 sigur á Hetti en leikið var í Ólafsvík.
Guðmundur Magnússon skoraði eina mark leiksins eftir tíu mínútna leik.
Undir lok leiksins dæmdi Pétur Guðmundsson dómari vítaspyrnu á Ólafsvíkinga en hætti við dóminnn eftir langar samræður við aðstoðardómara sinn sem taldi að sá leikmaður sem hafi verið brotið á hafi verið rangstæður.
Með sigrinum fóru Ólafsvíkingar í annað sætið deildarinnar með sjö stig, eins og topplið Hauka en lakara markahlutfall. Höttur er í 6. sæti með 4 stig.



