Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   sun 27. maí 2012 19:00
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: Goal.com 
Mourinho fylgdist með Lucas Moura gegn Dönum
Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid á Spáni var á meðal áhorfenda er Brasilía og Danmörk mættust í vináttuleik í gær.

Brasilía vann Dani með þremur mörkum gegn einu í vináttuleik í gær, en Hulk skoraði tvennu fyrir brasilíska liðið og þá skoruðu Danir sjálfsmark. Nicklas Bendtner skoraði fyrir danska liðið, en margir njósnarar voru á vellinum í gær.

Jose Mourinho var á meðal áhorfenda, en þetta staðfesti talsmaður hans á samskiptavef Twitter í gær. Hann var að fylgjast með Lucas Moura, leikmanni Sao Paolo í heimalandinu, en hann er einhver efnilegasti leikmaður heims um þessar mundir.

Mourinho er talinn hafa gríðarlega mikinn áhuga á þessum 19 ára gamla miðjumanni, en Chelsea hefur einnig verið á eftir honum. Hann er þó á samning hjá Sao Paolo til 2015, en ljóst er að hann fer ekki ódýrt þaðan.
Slapp
banner