Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   sun 27. maí 2012 18:05
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarlið Frakklands - Benzema og Nasri byrja
Leikur Frakklands og Íslands hefst eftir tæplega klukkustund, en byrjunarlið franska liðsins er komið inn.

Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport, en hún hefst klukkan 18:50. Ísland er tilbúið með sitt byrjunarlið, en það kom inn fyrir stuttu þar sem Aron Einar Gunnarsson er fyrirliði meðal annars,

Franska liðið er komið inn, en það verður öllu til tjaldað. Karim Benzema, Hatem Ben Arfa, Samir Nasri, Patrice Evra og Yohan Cabaye eru meðal þeirra sem byrja inn á í dag og má því búast við blússandi sóknarleik heimamanna.

Byrjunarlið Frakklands: Mandanda (M), Debuchy, Mexes, Evra, Rami, Cabaye, Nasri, Gourcuff, Ben Arfa, Menez, Benzema.
Slapp
banner
banner