Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   sun 27. maí 2012 19:30
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: Sky 
Boudebouz: Liverpool vill fá mig í sínar raðir
Ryad Boudebouz, leikmaður Sochaux í Frakklandi, segir að enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool vilji kaupa sig.

Þessi 22 ára gamli leikmaður hefur stóð sig frábærlega með Sochaux á tímabilinu, en hann hefur verið orðaður við öll stærstu liðin í Frakklandi. Þar má nefna Lyon, Lille og Marseille.

Hann segir þá að enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool hafi áhuga á sér og hafi rætt við umboðsmann hans.

,,Umboðsmaðurinn minn er í viðræðum við nokkur lið, þá sérstaklega í Frakklandi, en það er ekkert mikið að gerast þessa stundina. Liverpool er einnig í viðræðum við mig, en eins og ég endurtek þá er lítið að gerast í þessum málum," sagði Boudebouz.

Hann skoraði 5 mörk í 32 leikjum fyrir Souchaux á þessu tímabili en tímabilið áður skoraði hann átta mörk í 40 leikjum.
Slapp
banner
banner