Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
banner
   lau 02. júní 2012 21:24
Brynjar Ingi Erluson
Jóhannes Karl: Jafntefli kannski ágætis úrslit fyrir bæði lið
Jóhannes Karl Guðjónsson
Jóhannes Karl Guðjónsson
Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir
,,Við vissum náttúrulega að þeir myndu koma út alveg grenjandi vitlausir og náttúrulega ekki búið að ganga sem skildi hjá þeim," sagði Jóhannes Karl Guðjónsson, fyrirliði ÍA eftir 2-2 jafntefli liðsins gegn Grindvíkingum í dag.

ÍA rétt náði stigi gegn Grindvíkingum í dag. Tomi Ameobi kom heimamönnum yfir og þá jafnaði Jón Vilhelm Ákason metin rétt fyrir lok fyrri hálfleiks. Pape Mamadou Faye kom inn á sem varamaður og kom heimamönnum yfir á nýjan leik áður en Mark Doninger bjargaði stigi fyrir ÍA undir lok leiks.

,,Við vissum að þetta yrði hörkuleikur í dag sem þetta var. Kannski ekki besti fótboltinn, mikið um rok og langar sendingar, en Grindvíkingarnir koma okkur ekkert á óvart. Við svona vissum hvað þeir myndu reyna að gera og þeir eru náttúrulega með sterkan mann þarna frammi, Ameobi sem gerir þarna vel í markinu."

,,Við hefðum getað komið í veg fyrir þetta, svolítill klaufagangur í okkur. Þeir settu mikla pressu á okkur í fyrri hálfleik og sama var hjá okkur þegar vindurinn var með okkur þar sem við pressuðum á þá í síðari. Eina færið sem þeir fá í síðari hálfleik er þetta mark sem þeir skora, sem hefði átt að vera auðvelt fyrir okkur að verjast."

,,Við höfðum trú á því sem við vorum að gera og við vitum að við sköpum okkur færi. Gary fékk hérna frábært færi hérna rétt fyrir framan, tvo metra frá markinu og náði ekki að setja hann þá. Doninger fékk frábært færi og svo bjargað frá línu. Svona í seinni hálfleik hefðum kannski átt skilið að fara með öll þrjú stigin, en ef litið er á heildina á leiknum þá var jafntefli kannski ekkert ósanngjörn úrslit."

,,Ég veit ekki hvernig á að svara því. Við náttúrulega reynum að berjast eins mikið og við getum. Þetta féll svolítið með þeim í fyrri hálfleik, en við áttum samt góðar rispur þar sem við spiluðum okkur vel upp kantanna og með góðar fyrirgjafir. Það vantaði kannski aðeins upp á lokasendinguna og kannski að klára að setja boltann á markið, en eins og ég segi áðan, ef litið er á heildina á leiknum þá er jafntefli kannski ágætis úrslit fyrir bæði lið,"
sagði hann að lokum.

Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér að ofan í sjónvarpinu.
Slapp
banner