Toppliðið í norsku 2. deildinni, Avaldsnes, sigraði botnliðið Voss í dag.
Það tók Avaldsnes smá tíma að opna vörn Voss en eftir hálftíma leik fékk Avaldsnes víti sem Rachael Axon skoraði úr og þá var eins og allar flóðagáttir hefðu opnast.
Næst komst Hólmfríður Magnúsdóttir á blað þegar hún skoraði tvö mörk á fimm mínútum og liðið því komnar í 3-0 í hálfleik.
Kristín Ýr Bjarnadóttir lokaði síðan leiknum með því að bæta við 4. markinu við þegar um korter var eftir af leiknum.
Hólmfríður var valin maður leiksins en hún og Kristín Ýr hafa skorað 18 mörk samanlagt af 24 sem liðið hefur skorað.
Björk Björnsdóttir var að vanda í marki Avaldsnes og hélt því hreinu.





