Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
banner
   lau 02. júní 2012 22:31
Brynjar Ingi Erluson
Vináttulandsleikir: Tyrkland vann Portúgal
Nokkrir vináttulandsleiki fóru fram í dag, en þegar hefur verið greint frá tveimur sem voru spilaðir. Þar sem England vann Belgíu og Hollendingar löbbuðu yfir Norður-Íra, en nokkrir aðrir leikir voru á dagskrá.

Tyrkland vann Portúgal með þremur mörkum gegn einu. Umut Bolut skoraði tvennu áður en Nani minnkaði muninn, en Cristiano Ronaldo brenndi af vítaspyrnu er hann gat jafnað leikinn. Pepe skoraði síðan sjálfsmark undir lok leiks og lokatölur því 1-3.

Noregur og Króatía skildu jöfnf 1-1. Eduardo kom Króötum yfir á 79. mínútu áður en Torik Elyounoussi jafnaði metin á lokamínútunum. Pólland vann þá Andorra með fjórum mörkum gegn engu.

Úrslit og markaskorarar:

Portúgal 1-3 Tyrkland
0-1 Umut Bolut ('35 )
0-2 Umut Bolut ('52 )
1-2 Nani ('57 )
1-3 Pepe ('88, sjálfsmark )

Noregur 1-1 Króatía
0-1 Eduardo ('79 )
1-1 Torik Elyounoussi ('90 )

Pólland 4-0 Andorra
1-0 L. Obrianak ('13 )
2-0 R. Lewandowski ('37 )
3-0 J. Blaszczykowski ('39, víti )
4-0 M. Wasilewski ('79 )
Slapp
banner
banner
banner