,,Ég er ekki sáttur við stigið. Við ætlum alltaf að taka þrjú stig á heimavelli, en við vorum bara bitlausir fram á við og áttum þetta svo sem ekkert skilið," sagði Óttar Steinn Magnússon, leikmaður Hattar eftir markalaust jafntefli við BÍ/Bolungarvík í dag.
,,Við lögðum upp með að pressa mjög framarlega og vera grimmir, en það vantar eitthva power í okkur til þess að klára hlutina almenninlega og gera hlutina hundrað prósent fram á við."
,,Þessir strákar eru allir frábærir í fótbolta fram á við, en stíflan þarf bara að bresta held ég , en þeir hafa allir hæfileika og sýndu það inn á milli í dag. Það vantar bara powerið og setja kraft í þetta, þá koma færin."
,,Ég veit ekki um þetta Augnablikslið nema að þeir hafa verið að vinna nokkuð stórt í þriðju deildinni, þannig að það verður ekki auðvelt. Það eru líka þrír leikir á einni viku, þannig við getum ekkert farið þar inn á einhverjum hálfum hraða," sagði hann að lokum.
Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér að ofan.
























