Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
   lau 02. júní 2012 22:18
Fótbolti.net
Umfjöllun: Lið Völsungs taplaust á toppnum
Umfjöllun af 640.is
Mynd: 640.is - Hafþór Hreiðarsson
Völsungur 4 - 2 Afturelding
1-0 Arnþór Hermannsson ('21 )
1-1 John Henry Andrews ('44, víti )
2-1 Ásgeir Sigurgeirsson ('52 )
3-1 Tine Zornik
3-2 Elvar Ingi Vignisson
4-2 Ásgeir Sigurgeirsson

Það var sannkölluð sólarveisla er fólk byrjaði að flykkjast á Húsavíkurvöll í dag en þriðja umferð 2.deildar fór fram í fallegu veðri og að þessu sinni voru gestir dagsins Afturelding úr Mosfellsbæ.

Leikurinn fór fjörlega af stað og bæði lið skiptust á að sækja af miklum krafti og hraða. Strax á 6.mínútu virtist sem að Tine Zornik væri klipptur niður í teig Aftureldingar án þess að dómarinn dæmdi nokkuð. Strax mínútu síðar fékk Tine boltann aftur í teig andstæðinganna en fast skot hans fór rétt framhjá stönginni.

Gott samspil Tine, Halldórs og Ásgeirs skömmu síðar hleypti Völsungum inn í vítateig gestanna þar sem Arnþór fékk boltann en vinstri fótar skot hans fór rétt yfir markið.

Gestirnir fengu alveg sín færi og Dejan Pesic varði eitt sinn glæsilega eftir að sóknarmaður hafði sloppið einn í gegn. Völsungar vörðust þó vel og voru afar sprækir í sóknaraðgerðum sínum.

Á 21.mínútu leit fyrsta mark leiksins dagsins ljós. Tine Zornik fékk boltann framarlega og lék upp vinstri vænginn þar sem hann sendi stutt á Ásgeir Sigurgeirs. Ásgeir átti glæsilega fyrirgjöf á fjærstöng þar sem Arnþór Hermannsson mætti og þrumaði knettinum í netið! 1-0 fyrir Völsung eftir vel útfærða sókn.

Áfram sóttu liðin til skiptis og áttu Völsungar fínar tilraunir, þá helst Arnþór og Ásgeir með sín skot. Eftir um hálftíma leikur Ásgeir inn að miðju frá vængnum og þrumar að marki en skot hans sveif aðeins örfáa sentímetra frá vínklinum.

Rétt fyrir leikhlé fengu svo gestirnir vítaspyrnu. John Andrews fór á punktinn og skoraði. Skömmu síðar flautaði Valdimar Pálsson dómari leiksins og staðan 1-1 er liðin gengu til búningsklefa.

Það leið ekki að löngu og Ásgeir Sigurgeirsson fann netið. Tine Zornik dansaði með knöttinn hægra megin við vítateiginn, sendi fyrir og þar var mættur krulluhnokkinn og stangaði hann í hornið fjær og kom heimamönnum yfir á nýjan leik. Staðan, 2-1.

Gestirnir frá Mosfellsbæ reyndu hvað þeir gátu til þess að vinna sig inn í leikinn aftur og fengu aukaspyrnu á stórhættulegum stað. Stuttu síðar voru reyndar heimamenn stálheppnir að Afturelding skildi ekki jafna leikinn en Bjarki Þór Jónasson bjargaði meistaralega upp við marklínu og sá til þess að gestirnir komust ekki á bragðið á nýjan leik.

Á 69.mínútu kom svo þriðja mark Völsunga. Arnþór Hermannsson tók hornspyrnu sem rataði beint á kollinn á Tine Zornik sem að skallar hann í netið og staðan, 3-1.

Gestirnir minnkuðu þó muninn aftur á nýjan leik í, 3-2, er Elvar Ingi Vignisson skoraði með skoti frá markteig hægra megin sem að rétt lak framhjá Dejan Pesic og leikurinn aftur galopinn.

Fimm mínútum síðar klárað Ásgeir dæmið og slökkti í kjúklingabænum en Ásgeir Sigurgeirsson skoraði sitt annað mark og tryggði Völsungi sigurinn með snyrtilegri afgreiðslu í fjærhornið eftir sendingu frá Tine Zorkik.

Lokatölur á Húsavíkurvelli, 4-2, og Völsungur á toppi deildarinnar eftir fjórar umferðir.
Slapp
banner
banner
banner