Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
banner
   lau 02. júní 2012 22:43
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: The Mirror 
Brendan Rodgers vill fá Gylfa til Liverpool
Brendan Rodgers, nýráðinn knattspyrnustjóri Liverpool hefur áhuga á því að fá Gylfa Þór Sigurðsson, leikmann Hoffenheim í Þýskalandi til liðs við sig samkvæmt heimildum The Mirror.

Rodgers, sem var við stjórnvölinn hjá Swansea City, fékk Gylfa lánaðan til félagsins í janúar síðastliðnum, en hann stóð sig vel með sjö mörk í sautján leikjum og var meðal annars valinn leikmaður mánaðarins í mars.

Það leit út fyrir að Gylfi færi til Swansea í sumar, þar sem enski miðlar greindu frá því að Hoffenheim og Swansea hefðu komist að samkomulagi á kaupverði um leikmanninn og ætti hann aðeins eftir að ganga frá sínum samningum og klára læknisskoðun, en svo kom babb í bátinn.

Rodgers tók við Liverpool, en hann var ástæða þess að Gylfi ákvað að fara til Swansea fyrir það fyrsta. Það virðist því vera að Gylfi fari ekki til Swansea, en Rodgers vill ólmur fá hann til Liverpool.

,,Þegar ég talaði við Huw Jenkins, formann félagsins um daginn þá lét ég hann vita það að ég myndi ekki taka leikmenn frá klúbbnum og ég mun standa við það, en Gylfi kom til Swansea af því að ég var við stjórnvölinn," sagði Rodgers.

,,Ég í raun ýtti á Swansea til þess að fá þau félagaskipti í gegn og þeir létu það eftir mér á endanum, en núna er þetta undir Gylfa komið. Ég sagði við Huw að ef ég tala við strákinn þá ráðlegg ég honum að fara og ræða málinn við nýja stjórann og sjá hvernig honum líkar."

,,En ef honum líst ekkert á þetta og hann fer aftur á markaðinn þá mun ég klárlega hafa áhuga,"
sagði hann að lokum.
Slapp
banner
banner
banner
banner