Heimild: Goal.com
Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, er ekki sammála því að Spánn spili svipaðan fótbolta og Barcelona.
Spænska landsliðinu hefur oft verið líkt við Barcelona, en spilamennska liðanna þykir nauðalík, enda eru fjölmargir leikmenn þjóðarinnar á mála hjá Börsungum og því ágætis rökstuðningur á bakvið það.
Mourinho er hinsvegar ekki sammála því og bendir á að fimm leikmenn Real Madrid séu í hópnum og að þeir séu alveg jafn mikilvægir og restin af hópnum.
,,Þið talið um spænska landsliðið og Barcelona, en spænska landsliðið er með fimm leikmenn frá Real Madrid líka," sagði Mourinho.
,,Ég skil ekki hvernig þið getið líkt þessu saman þar sem þetta er tvennt ólíkt. Barcelona var spænskur meistari og ég endurtek var spænskur meistari og ekkert meira en það," sagði hann að lokum.


