Alonso mikill aðdáandi Zubimendi - Funda í þriðja sinn um Fernandes - Ten Hag að taka við Leverkusen?
Óskar Hrafn: Þegar tveir strengir slitna tekur tíma að ná aftur takti við hljómsveitina
Rúnar vildi fá víti: Dómarinn á að sjá þetta betur en ég
Jökull: Enginn fór og henti kuðung í sturtubotninn
Þorri Mar þakklátur Stjörnunni - „Sýnir að það sé ekkert okkar á milli"
Láki: Það var reiðarslag fyrir okkur
Valor fékk að velja undir lok gluggans: Gott að sjá vini mína aftur
Jón Þór: Töpum á öllum sviðum leiksins og ég á enga útskýringu á því
Sá yngsti í sögunni: Fór beint heim, hringdi í alla og lét þau vita
Birkir mjög sáttur á Hlíðarenda: Eignuðumst barn og konan vildi koma suður
Túfa: Sást í augunum á mönnum að menn vildu svara fyrir sig
Lúkas Logi: Þetta er ekkert flókið
Gunnar Már: Jöfnunarmarkið var 100% brot
Halli Hróðmars: Þetta var flókinn dagur
Gunnar Heiðar: Erum á góðri leið með þetta lið
Alli Jói: Ógeðslega lengi út úr rútunni
Aron Snær: Pirrandi að við erum búnir að fá okkur tvö skítamörk
Davíð Smári hrósaði Fatai í hástert - „Gjörsamlega stórkostlegur"
Kallar eftir virðingu frá dómurum - „Vonandi kemur VAR í íslenska boltann sem fyrst"
Bjarni Jó: Blessaður vertu ég er búinn að vera í þessu í tæp 40 ár
Pablo Aguilera: Vissulega kalt fyrir mig komandi frá Spáni
   lau 16. júní 2012 17:22
Magnús Már Einarsson
Haukur Heiðar: Það var enginn að dekka mig
Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir
,,Ég veit ekki hvort þetta hafi verið meistaraheppni en við áttum ekki okkar besta leik og það skiptir máli að vinna þá leiki líka," sagði Haukur Heiðar Hauksson leikmaður KR ánægður eftir 3-1 sigur liðsins á Selfyssingum í dag.

Haukur Heiðar skoraði annað mark KR í dag með skalla eftir hornspyrnu en þetta var fyrsta mark hans í efstu deild.

,,Það var gott að fá loksins að fagna fyrir framan KR-ingana. Atli er með frábær horn og það var enginn að dekka mig þannig að það var gott að skora. Hann byrjaði á að dekka mig en síðan fór hann á nærstöngina og þá var ég aleinn á fjær. Ég átti að klára þetta."

Haukur Heiðar og Magnús Már Lúðvíksson hafa verið að skiptast á að leika í hægri bakverðinum hjá KR í síðustu leikjum.

,,Þetta er stór hópur og það er mjög mikil breidd. Ég bjóst ekki við því fyrir tímabilið að spila meira en ég hef gert og ég er mjög ánægður eins og þetta er."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner