Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   lau 16. júní 2012 18:54
Kristbjörg Jónasdóttir
Umfjöllun: Öruggur sigur á Ungverjum
Kvenaboltinn
Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði fyrsta markið.
Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði fyrsta markið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hólmfríður var á skotskónum.
Hólmfríður var á skotskónum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sandra María Jessen skoraði í fyrsta landsleik sínum.
Sandra María Jessen skoraði í fyrsta landsleik sínum.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Ísland 3 - 0 Ungverjaland
1-0 Margrét Lára Viðarsdóttir (7’)
2-0 Hólmfríður Magnúsdóttir (42’)
3-0 Sandra María Jessen (86’)

Ísland og Ungverjaland mættust í dag í undankeppni fyrir Evrópumót kvenna sem fer fram í Svíþjóð á næsta ári. Með sigrinum komst íslenska liðið í efsta sæti riðilsins með 16 stig, einu stigi meira en Noregur í öðru sæti eftir jafn marga leiki.

Fyrsta mark leiksins kom á 7. mínútu eftir stífa sókn að marki Ungverjalands. Margrét Lára Viðarsdóttir komst ein í gegnum slaka vörn Ungverja og hafði nægan tíma til að koma boltanum framhjá markmanni ungverska liðsins. Þetta leit út fyrir að vera mjög auðvelt fyrir Margréti Láru en á sama tíma var þetta skelfilegur varnarleikur hjá Ungverjunum.

Örfáum mínútum síðar var Fanndís Friðriksdóttir næstum því búin að koma Íslendingum í 2-0 eftir að hafa sloppið í gegnum vörn Ungverjalands en markmaður þeirra varði vel frá henni.

Íslensku stelpurnar höfðu algjörlega undirtökin í fyrri hálfleiknum. Þær voru miklu meira með boltann og virtust stjórna leiknum.

Ungverjar fengu þó dauðafæri á 27. mínútu eftir skelfilegan varnarleik af hálfu íslenska liðsins. Erika Szum komst í gegnum vörn Íslendinga og í dauðafæri, ein á móti Þóru Helgadóttur, markmanni, en Þóra stóð sig glæsilega, kom út úr markinu á hárréttum tíma og varði skot hennar. Þarna fór Erika illa með sannkallað dauðafæri.

Stuttu seinna skoruðu Ungverjar mark sem var dæmt af vegna rangstæðu. Ungverjar áttu þá háa sendingu fyrir markið sem Sif Atladóttir náði að setja höfuðið í, sem endaði þó ekki betur en að boltinn fór í stöngina. Sóknarmaður Ungverja var mættur við stöngina til að ná frákastinu og tókst að skora en rangstæða var dæmd. Þetta var sennilega ekki rangstæða þar sem Sif Atladóttir var sú sem átti stoðsendinguna.

Næstu 15 mínútur leiksins voru frekar rólegar. Íslenska liðið hafði þó enn undirtökin.
Hólmfríður Magnúsdóttir jók svo forskot íslenska liðsins í 2-0 á 42. mínútu. Hólmfríður og varnarmaður Ungverja voru báðar að eltast við boltann við vítateig Ungverja. Markmaður Ungverja kemur svo út úr markinu en í stað þess að tækla Hólmfríði hleypur hún á samherja sinn þannig að þær liggja báðar eftir. Það var þá ekki mikið mál fyrir Hólmfríði að skora, ein fyrir opnu marki.

Íslensku stelpurnar byrjuðu seinni hálfleikinn af krafti. Strax á 47. mínútu skoruðu þær mark sem var þó dæmt af. Hólmfríður Magnúsdóttir átti þá flotta sendingu fyrir markið sem Dóra María Lárusdóttir skallaði beint í netið. Hún var hins vegar dæmd rangstæð og markið þess vegna dæmt af. Þetta leit ekki út fyrir að vera rangstæða en segja má að réttlætinu hafi verið fullnægt þar sem lögleg mörk voru dæmd af báðum liðum. Dómaratríóið mætti hins vegar kynna sér rangstæðuregluna betur.

Næstu mínútur leiksins voru mjög rólegar en bæði lið fengu þó fín færi inni á milli. Lítið var hins vegar um dauðafæri.

Sandra María Jessen gulltryggði svo sigur Íslands með marki á 86. mínútu, aðeins tveimur mínútum eftir að henni var skipt inn á í sínum fyrsta A-landsleik. Til gamans má geta að tveir íslenskir leikmenn léku sinn fyrsta A-landsleik í dag, Elín Metta Jensen og Sandra María Jessen.

Fleiri mörk voru ekki skoruð í leiknum og lokatölur því 3-0, Íslandi í vil.
Slapp
banner
banner