Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   lau 16. júní 2012 20:38
Brynjar Ingi Erluson
Tékkland og Grikkland áfram - Rússland og Pólland úr leik
Tékkland og Grikkland eru komin í 8-liða úrslit Evrópumótsins í Póllandi og Úkraínu eftir að hafa sigrað sína leiki í lokaumferðinni í kvöld.

Tékkland sigraði gestgjafa mótsins með einu marki gegn engu. Pólverjar voru sterkir í leiknum, en það var mikið jafnræði. Sigurmark leiksins kom þó ekki fyrr en á 72. mínútu þegar Petr Jiracek fékk boltann inni í teignum og lagði hann undir markvörð pólska liðsins og inn.

Milan Baros fékk mörg tækifæri til þess að bæta við öðru markinu, en honum brást bogalistin. Pólverjar sóttu mikið undir lok leiksins, en tókst ekki að nýta færin sín. Þeir áttu nokkur góð skallafæri, en boltinn fór yfir markið í tvígang.

Tékkar björguðu svo á línu á lokasekúndu síðari hálfleiks þegar Jakub Błaszczykowski komst í gegn, en var óheppinn að skora ekki og Tékkar vörðust vel.

Grikkland vann þá óvæntan sigur á Rússum 1-0. Rússar sóttu stíft í leiknum, en vörn Grikkja hélt. Giorgos Karagounis skoraði sigurmarkið fyrir Grikkja, en það kom undir lok fyrri hálfleiks af stuttu færi.

Tékkar og Grikkir því í 8-liða úrslitin á kostnað Rússlands og Póllands, en heldur óvænt að sjá rússneska liðið úr leik.

Úrslit og markaskorarar:

Pólland 0-1 Tékkland
0-1 Petr Jiracek ('72 )

Grikkland 1-0 Rússland
1-0 Giorgos Karagounis ('45 )
Slapp