Wayne Rooney snéri aftur í enska landsliðið með látum og skoraði sigurmark liðsins í 1-0 sigri gegn Úkraínu í lokaumferð riðlakeppninnar á EM í kvöld og tryggði þar með farseðilinn í 8-liða úrslit.
Rooney var ánægður með sigurinn en hann hafði afplánað tveggja leikja bann. England mætir Ítölum í 8-liða úrslitum.
Rooney var ánægður með sigurinn en hann hafði afplánað tveggja leikja bann. England mætir Ítölum í 8-liða úrslitum.
,,Við erum hæstánægðir með sigurinn og það var frábært að skora. Ég hef ekki skorað á stórmóti í langan tíma. En liðið í heild var stórkostlegt,“ sagði markaskorarinn eftir leikinn.
Rooney er orðinn ansi hárprúður eftir að hafa farið í hárígræðslu en hann fagnaði marki sínu með því að úða ímynduðu hárspreyi í hárið á sér.
,,Ég notaði hárvörur frá Andy Carroll fyrir leikinn. Hann sagði mér að nota höfuðið til að skora, vonandi enda ég með hár eins og hann," sagði Rooney
,,Við vitum hvað við getum og hvers við erum megnugir. Nú fáum við smá hvíld og vonandi mætum við ferskir til leiks í næstu umferð. Það sem skipti máli var að komast upp úr riðlinum."




