Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 20. júní 2012 09:30
Sebastían Sævarsson Meyer
Platini vill að Spánn og Þýskaland mætist í úrslitum
Michel Platini, forseti UEFA, vonast til þess að Spánn og Þýskaland munu leika til úrslita á EM en eftir lokaumferð riðlakeppninnar enduðu bæði í efsta sæti í sínum riðli og tryggðu sér því sæti í 8-liða úrslitum.

Bæði lið eru talin líkleg til árangurs í keppninni en fyrir fjórum árum mættust liðin einmitt í úrslitaleik EM 2008.

,,Ég myndi vilja að úrslitaleikurinn yrði á milli Spánar og Þýskalands," sagði Platini.

Á meðan Spánn og Þýskaland stóðu undir væntingum í riðlakeppninni þá ollu önnur lið vonbrigðum og féllu úr leik.

,,Að Holland hafi fallið úr leik sýnir að Evrópumótið er erfiðara en Heimsmeistaramótið," hélt Platini áfram.

,,Það kom mér verulega á óvart að Holland hafi sitið eftir, það sama má segja um Rússland."

Þá er Frakkinn mjög heillaður af ítalska landsliðinu og hrósar hann Cesare Prandelli, þjálfara liðsins, fyrir vel unnin störf.

,,Prandelli hefur fengið lið sitt til að spila fótbolta, það er frábært að sjá. Það undraði mig að sjá Ítali spila ekki sinn klassíska varnarleik," sagði Platini að lokum.
Slapp
banner
banner