Blackburn hefur staðfest það að Steve Kean verði áfram knattspyrnustjóri félagsins og muni fá pening til leikmannakaupa. Kean er gríðarlega umdeildur en Blackburn féll úr ensku úrvalsdeildinni síðasta vetur undir hans stjórn.
Shebby Singh, stjórnarmaður hjá Blackburn, segir að vinna sé þegar hafin við það að styrkja liðið og viðræður séu í gangi við öfluga leikmenn. Stefnan sé sett á að fara beint aftur upp.
„Það verða notaðir peningar í að fá leikmenn sem félagið þarf á að halda. Við erum í leit að styrk sóknarlega," segir Singh.
Kean og hinir indversku eigendur Blackburn eru einstaklega óvinsælir meðal stuðningsmanna Blackburn en halda ótrauðir áfram.



